Skákþingið nú er vel skipað og vel að því staðið af hálfu TR sem nýverið landaði samstarfssamningum við leikjaframleiðandann CCP og MP banka. Ýmsir hafa greinilega mætt til leiks til að hita sig upp fyrir stórmót vetrarins og má þar nefna þá sem koma næstir á eftir Hjörvari í 2.-4. sæti þá Björn Þorfinnsson, Ingvar Þ. Jóhannesson, Sigurbjörn Björnsson en þeir voru allir með 6 vinninga. Bragi Þorfinnsson var með 5½ vinning ásamt nokkrum öðrum en fyrirfram mátti búast við baráttu hans og Hjörvars um efsta sætið. Klaufaskapur Braga í lykilskákinni við Hjörvar og síðar gegn Sverri Þorgeirssyni hlýtur að kenna þessum öfluga skákmanni að stundum er betri einn fugl í hendi en tveir í skógi. Mestri stigahækkun meðal keppenda fagna Örn Leó Jóhannsson og Tinna Kristín Finnbogadóttir.
Ýmsar aðrar niðurstöður má lesa út úr mótstöflunni. Bjarni Jens Kristinsson virðist seint ætla að láta af þeirri venju sinni að sækja bróðurpart vinninganna á lokasprettinum. Í áttundu umferð mætti hann hinum þrautreynda meistara Hrafni Loftssyni sem hefur verið iðinn við kolann síðustu misseri eftir langt hlé. Sigur hans sýnir svo ekki verður um villst hversu margir sterkir skákmenn taka þátt í mótinu:
Skákþing Reykjavíkur 2010; 8. umferð:
Hrafn Loftsson – Bjarni Jens Kristinsson
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. Rc3 a6 4. d4 cxd4 5. Rxd4 b5 6. Bd3 Bc5 7. Rb3 Ba7 8. 0-0 Re7 9. De2 0-0 10. Be3 Rbc6 11. Bxa7 Hxa7 12. f4 Rb4 13. Df2 Hc7 14. Hfd1 Bb7 15. Rc5 Dc8 16. Rxb7 Dxb7 17. Bf1 Hfc8 18. a3 Rbc6 19. e5 Ra5 20. Hd2 h6 21. Bd3 Rc4 22. Bxc4 bxc4 23. Hb1 Hb8 24. g3 Rf5 25. Dg2 Db6+ 26. Df2 Da5 27. g4 Re7 28. De3 Hcb7 29. Hbd1 Hxb2 30. Re4 Rd5 31. Df3 c3 32. He2 Hb1 33. Hee1 Hxd1 34. Hxd1 Db6+ 35. Kh1 De3 36. Dxe3 Rxe3 37. Hc1 Hc8 38. Rd6 Hc5 39. h3 Ha5 40. He1 Rd5 41. f5 Hxa3 42. Hb1 f6 43. Hb8+ Kh7 44. Rf7 g6 45. Hb7 Ha1+ 46. Kh2 gxf5 47. gxf5 Hc1 48. Hxd7 Hxc2+ 49. Kg3 Hd2
50. fxe6 c2 51. exf6 Rxf6 52. Hc7 Rd5 53. Hc6 Hd3+ 54. Kg4 Hc3 55. Hxc3 Rxc3 56. e7 c1=D 57. e8=D Dd1+ 58. Kh4 Dd4+ 59. Kg3 Re4+ 60. Kf3 Df2+
– og hvítur gafst upp.
Kramnik efstur á Corus-mótinu
Miklar sviptingar hafa átt sér stað á Corus-mótinu í Wijk aan Zee og Vladimir Kramnik náði óvænt forystunni þegar hann sigraði Magnús Carlsen með svörtu í 9. umferð og er nú með 7 vinninga af 10 mögulegum. Alexei Shirov hefur misst flugið eftir að hafa unnið fimm fyrstu skákir sínar. Hann er þó í 2.-3. sæti ásamt Magnúsi en síðan koma Anand heimsmeistari, Nakamura, Ivantsjúk og Dominguez með 5½ v. Mótinu lýkur um helgina.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Skákþættir Morgunblaðsins eru birtir á Skák.is u.þ.b. viku síðar en í blaðinu sjálfu.
Grein þessi birtist í sunnudagsmogganum, 31. janúar 2010.
Meginflokkur: Spil og leikir | Aukaflokkur: Íþróttir | Facebook
Nýjustu færslur
- Hjörvar vann - Bragi með jafntefli
- Breska deildakeppnin: Bragi og Hjörvar í beinni kl. 14
- Björn Þorfinnsson skákmeistari Reykjavíkur í þriðja sinn
- Skákkeppni vinnustaða fer fram 17. febrúar
- Skákþing Goðans fer fram 17.-19. febrúar
- Gallerý Skák mótaröðin: Magnús vann þriðja mótið
- Enn hækkar Caruana - kominn í sjöunda sæti heimslistans
- Björgvin og Dagur efstir á Gestamóti Goðans
- Davíð hraðskákmeistari Hellis í fjórða sinn
- Tímaritið Skák kemur út í marsbyrjun
Spurt er
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Breska deildakeppnin 11. og 12. febrúar - Hjörvar og Bragi
- Gestamót Goðans 12. janúar - 23. febrúar
- KORNAX mótið - Skákþing Reykjavíkur - aukakeppni 1.-12. febrúar
- Skákþing Akureyrar 22. janúar - 15. febrúar
- Skákþing Vestmannaeyja 11. janúar - 22. febrúar
- Þorraatskákmót SSON 25. janúar - 15. febrúar
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skákakademía Reykjavíkur
- Skákbækur til sölu
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skáksagan Hrafn Jökulsson bloggar um skáksöguna
- Skákfréttasíða Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Þjálfaðu eins og stórmeistari Kennslusíða Henriks
- Skákvörur Heimasíða á vegum Smára Rafns
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Taflfélagið Hellir Sterkt og skemmtilegt!
- Taflfélag Reykjavíkur
- Taflfélag Garðabæjar
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélagið Goðinn
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild KR
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chessdom
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Chess Vibes
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
- Tim Krabbé
- First Saturday Mánaðarleg skákmót í Búdapest
Teflt á netinu
Almanök
Spjallþræðir
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- ChessNinja
RSS-straumar
Eldri færslur
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.2.): 806
- Sl. sólarhring: 1903
- Sl. viku: 18858
- Frá upphafi: 3706920
Annað
- Innlit í dag: 357
- Innlit sl. viku: 5572
- Gestir í dag: 250
- IP-tölur í dag: 230
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Augnablik - sæki gögn...




Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.