18.3.2010 | 15:33
Morgunblaðið: Þá er það heimsfrétt!
*Margt ber fyrir augu og eyru þegar rölt er milli taflborða á skákmóti *Mikið er spáð og spekúlerað og jafnvel vitnað í vísur fyrri móta
Grein eftir Pétur Blöndal sem birtist í Morgunblaðinu 3. mars og birt hér með leyfi höfundar. Einnig fylgja með skákskýringar Helga Ólafssonar á skák Hjörvars Steins og Kogan sem birtist í sama tölublaði Morgunblaðsins. Pétur, Helgi og Morgunblaðið fá þakkir fyrir.
Skákmótið er hafið. Klukkurnar farnar að tifa. En efsti maður mótsins, Ivan Sokolov, situr enn fyrir framan tölvuna í kaffistofu Ráðhússins og sýnir ekki á sér fararsnið, þó að mínúturnar fjari undan honum. „Hann gerir þetta alltaf," segir Gunnar Björnsson, forseti Skáksambandsins, og kippir sér ekkert upp við þessa sjón.Irina Krush stendur enn í röðinni og bíður eftir salatdisknum. Hún hefur blandað sér í slag stórmeistaranna, er í sjötta til sextánda sæti fyrir daginn. Í salnum eru áhorfendur ekki síður í djúpum þönkum en keppendurnir. Einn situr og les The Brief Wondrous Life of Oscar Wao eftir Junot Díaz. Svo er þarna stöðumælavörður - kannski til að fylgjast með klukkunum. Einn er með sexpensara í fagurgulri skyrtu. Og inni á milli áhorfenda sitja keppendur í djúpum þönkum. Nú er það Hannes Hlífar Stefánsson, sem horfir þaðan á stöðuna í skákunum, þar á meðal sinni. Hann er með peð upp í skiptamun. Engu að síður hefur mótherji hans hugsað í tuttugu mínútur samfleytt um næsta leik.
„Þetta er hnífjafnt," hvíslar Gústaf Steingrímsson, skákmaður Ufsans, að blaðamanni.
„Við vorum að skoða þetta í vinnunni, hentum þessu upp í tölvu, og þetta eru allt þekktir leikir. Nema síðasti leikur Hannesar, kóngur á h8, venjulega er honum leikið á f7."
„Þetta er á uppleið," hvíslar Björn Þorfinnsson, sem mætir blaðamanni á rölti um salinn.
„Ég var miður mín í tvær umferðir eftir að hafa klúðrað hróksendatafli á móti frönskum stórmeistara, þar sem ég var tveim peðum yfir. Ég missti það niður í endatafl."
Hann dæsir.
„Þetta getur verið erfitt fyrir sálina. En vonandi vinn ég tvær síðustu. Þá verður þetta allt í lagi."
Hann horfir yfir salinn.
„Það verður spennandi ef Nyzhnyk vinnur. Þá er það heimsfrétt! Það er alltaf gott fyrir skákmót þegar það gerist."
Svo snýr hann sér við og tautar um leið: „Jæja, ég verð að fara, sá enski er búinn að leika."
Hann hafði sigur þennan daginn. En ekki Nyzhnyk. Drengnum 13 ára frá Úkraínu nægir þó að vinna í dag til að ná þriðja áfanganum og verða fjórði yngsti stórmeistari frá upphafi.
Það yrði heimsfrétt.
Róbert Lagerman blæs til sóknar eins og vant er, lætur það ekki trufla sig að hann er með svart. Romanishin er í jakkafötum og virðulegur á svip að vanda. Jafnvel þegar hann lendir í tímahraki á móti Braga Þorfinnssyni í einni mest spennandi skák kvöldsins. Það þarf ekki að koma á óvart að maður með slíkt jafnaðargeð geri jafntefli.
Stráklingarnir Svanberg Már Pálsson og Páll Andrason eru komnir í endatafl á meðan miðtaflið stendur enn yfir á öðrum borðum. Innan skamms sitja þeir á kaffistofunni og fara yfir af hverju skákinni lauk með jafntefli.
Þriðji stráklingurinn, Emil Sigurðarson, sest augnablik með þeim, þó að skák hans standi enn yfir í salnum. Hann stingur upp á leik. „Djísús, sá ég þetta ekki!" heyrist í öðrum hinna.
„Jafntefli," kallar hinn þegar mamma hans gengur í hús.
Björn Þorfinnsson slæst í hópinn: „Þú leikur bara hérna og hérna og hérna. Hvað ætlar hann þá að gera?" Þeir horfa á stöðuna. Þegja bara. „Þetta var close!" segir Björn svo og labbar brosandi burtu. Hann hefur um annað að hugsa.
„Hún er spennandi skákin hjá Hannesi," segir Gunnar Björnsson, sem mættur er aftur í hús, eftir að hafa skroppið í vinnuna.
„Hann fann reyndar helvíti sniðuga leið út úr þessu Nataf. Hann fórnaði bara skiptamuninum til baka. Þannig að þetta er jafnteflislegt, en Hannes er þó með ívið betri stöðu."
Stórmeistarinn Jóhann Hjartarson er mættur.
Skákskýringar að hefjast.
Að því gefnu að borgarfulltrúarnir taki sér ekki of langt matarhlé, því skákskýringarnar eiga að fara fram í matsalnum. Það hefur bæst við áhorfendafjöldann.
Þetta er þjóðaríþróttin.
Og nú fylgist Nataf með úr salnum á meðan Hannes Hlífar situr við skákborðið. „Þetta er nú samt ekkert einfalt," segir Jóhann íhugull. Hann er að fara yfir skák Hannesar og Natafs. Remúlaðilyktin enn í loftinu eftir borgarstjórnina.
„En óneitanlega lítur þetta mjög vel út á svartan. Nú er Hannes með peði yfir og með mátmöguleika með hrók, riddara og peði." Hann kemst með sigri í efsta sætið, þar sem Ivan Sokolov tróndi áður.
„Það fór illa fyrir Sokolov eins og þið sáuð," segir Jóhann.
„Þetta var alveg svakaleg kyrking sem hann lenti í. Enda sást undir hælana á honum þegar hann gekk út." Hann hlær.
„Við erum ágætir mátar, en það er langt síðan ég spjallaði við hann. Ætli það séu ekki liðin tvö ár. Og ég náði ekki tali af honum áðan. Ég ætlaði bara að segja að honum hefði ekkert farið fram síðan síðast!" Hann hlær ennþá meira.
„Það á alltaf að strá salti í sárin." Svo lítur hann út í salinn.
„Eigum við kannski að renna yfir skákina hjá Ivan Sokolov? Hvernig svona mikill meistari gat fengið svona vonda stöðu í byrjuninni." Þegar líður á skákina fer Jóhann að aka sér í stólnum, svo óþægileg er staða Sokolovs.
„Það er best að Ivan er ekki hér. Við skulum ekki rekja þetta lengur. Hvernig ætli staðan sé hjá Hannesi. Já, já, peðið fer upp. Ég skil nú ekki af hverju Nataf er ekki búinn að gefa þetta. Kannski við kíkjum á skákina hjá Þresti [Þórhallssyni]. Hann er svona með heldur lakara."
Þröstur heldur þó út manna lengst. Enda í essinu sínu með tvo riddara í endatafli. En verður að lokum að játa sig sigraðan. Í horni matsalarins eru seldar skákbækur. Þar eru teóríurnar. Og það rifjast upp fyrir Jóhanni: „Ágúst Þór Árnason skákmeistari og hæstaréttarlögmaður sló fram fyrriparti á helgarskákmóti á Sauðárkróki í kringum 1980: Enga leiki æskan skilur, allt af bókum lærir hún.
Þá svaraði Benóný á augabragði - ég varð vitni að þessu:
Það er eins og blindabylur blási fram af hæðarbrún."
-----------------------------------------
Herkví
Skákskýringar Helga Ólafssonar sem birtist í Morgunblaðinu 3. mars sl.
Það eru til nokkrar frægar stöður úr skáksögunni þar sem aðstaða taflmannanna á skákborðinu hefur orðið svo ólánleg að lengi er í minnum haft. Í þrettándu einvígisskák Spasskí og Fischer í Laugardalshöllinni '72 lenti hrókur Fischer í herkví á g8. Biskup, studdur af peði á g7, lokaði hann inni á f8. Á hinum hluta borðsins var Spasskí umsetinn framsækinni peðfylkingu. Önnur frípeð átti áskorandinn á dreif en kóngur hans komst þó hvorki lönd né strönd. En svo lagði hann á fljótið og þurfti til þess að fórna þeim fótgönguliða sem lengst var kominn að uppkomureitnum. Síðar villtist Spasskí af réttri leið, hrókurinn slapp úr herkvínni og hinn geðþekki heimsmeistari varð að fella kónginn. Í Höllinni ríkti um skeið þess konar samúð með Spasskí að minnti á harmleik. Jafnvel yfirdómarinn Lothar Schmid reyndi að hughreysta hann og var það nú kannski ekki hans hlutverk.Ég er ekki viss um að áhorfendur í Ráðhúsi Reykjavíkur hafi verið í slíkum þönkum þegar Hjörvar Steinn Grétarsson króaði hrók hins öfluga ísraelska stórmeistara Arturs Kogan af í sjöttu umferð Reykjavíkurskákmótsins. Miklu fremur að menn hafi brosað í kampinn og Kogan tók þessum neyðarlegu endalokum af karlmennsku. En sigur Hjörvars var einn margra góðra sem íslensku skákmennirnir hafa unnið á mótinu:
24. Reykjavíkurskákmótið:
Artur Kogan - Hjörvar Steinn Grétarsson
Nimzo-indversk vörn
1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. c4 Bb4 4. Rc3 c5 5. e3 O-O 6. Bd3 d5 7. O-O Rbd7 8. cxd5 exd5 9. Re5 He8 10. f4 Rf8 11. Df3 Re6 12. a3 Ba5 13. f5 Rg5 14. Dg3 Bxc3 15. Dxg5 Hxe5!
Lætur skiptamun af hendi. Hvítur hefði sennilega betur tekið á c3.
16. dxe5 Bxe5 17. Hb1 Dd6 18. Dh4 Bd7 19. Bd2 He8 20. Kh1 b5 21. Hf3 Bc6 22. Hh3 h6 23. b3 c4 24. Bb4 Dc7 25. Bc2 Bb7 26. Be1 Dc6 27. Df2 a6
Styrkir stöðu sína í rólegheitum, 27. ... d4 kom einnig til greina.
28. Df3 Re4 29. Bxe4 dxe4 30. Dd1 c3 31. Hc1 Hc8 32. Dc2 Dd5! 33. Bg3 Hjörvar hafði vonast eftir 33. Bg3 sem hann hugðist svara með 33. ... Dd3! 34. Hxd3 exd3 35. Dxd3 c2! og vinnur.
33. ... Bxg3 34. Hxg3 Dd2 35. f6 g6 36. h4 Dxc2 37. Hxc2 Bd5 38. b4 Bb3 39. Hc1 Be6!
Hrókurinn á g3 er lentur í herkví.
40. Hc2 Kf8 41. Kg1 Ke8 42. Hc1 Bf5 43. Kf2 Kd7 44. Ke1 c2 45. Kd2 Ke6 46. Hxc2 Hxc2 47. Kxc2 Kxf6 48. a4 Ke5 49. axb5 axb5 50. Kc3 f6 51. Kd2 g5 52. Kc3 g4
53. Kd2 Be6 54. Kc3 f5 55. Kd2 Bc4 56. Kc2 Kd5 57. Kc3 Bf1 58. Kb3 Be2 59. Kc3 Bd1 60. Kd2 Ba4 61. Kc3 h5
Leikþröng.
62. Kb2 Kc4 63. Ka3 Kc3
- Þessa stöðu væri hægt að vinna án biskupsins. Kogan gafst upp.
helol@simnet.is
Meginflokkur: Spil og leikir | Aukaflokkar: Skákþættir Morgunblaðsins, Íþróttir | Breytt 19.3.2010 kl. 12:10 | Facebook
Nýjustu færslur
- Hjörvar vann Flear - Bragi tapði
- Hjörleifur skákmeistari Akureyrar
- Hjörvar vann - Bragi með jafntefli
- Breska deildakeppnin: Bragi og Hjörvar í beinni kl. 14
- Björn Þorfinnsson skákmeistari Reykjavíkur í þriðja sinn
- Skákkeppni vinnustaða fer fram 17. febrúar
- Skákþing Goðans fer fram 17.-19. febrúar
- Gallerý Skák mótaröðin: Magnús vann þriðja mótið
- Enn hækkar Caruana - kominn í sjöunda sæti heimslistans
- Björgvin og Dagur efstir á Gestamóti Goðans
Spurt er
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Gestamót Goðans 12. janúar - 23. febrúar
- KORNAX mótið - Skákþing Reykjavíkur - aukakeppni 1.-12. febrúar
- Skákþing Vestmannaeyja 11. janúar - 22. febrúar
- Þorraatskákmót SSON 25. janúar - 15. febrúar
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skákakademía Reykjavíkur
- Skákbækur til sölu
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skáksagan Hrafn Jökulsson bloggar um skáksöguna
- Skákfréttasíða Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Þjálfaðu eins og stórmeistari Kennslusíða Henriks
- Skákvörur Heimasíða á vegum Smára Rafns
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Taflfélagið Hellir Sterkt og skemmtilegt!
- Taflfélag Reykjavíkur
- Taflfélag Garðabæjar
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélagið Goðinn
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild KR
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chessdom
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Chess Vibes
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
- Tim Krabbé
- First Saturday Mánaðarleg skákmót í Búdapest
Teflt á netinu
Almanök
Spjallþræðir
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- ChessNinja
RSS-straumar
Eldri færslur
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.2.): 1513
- Sl. sólarhring: 1912
- Sl. viku: 19565
- Frá upphafi: 3707627
Annað
- Innlit í dag: 622
- Innlit sl. viku: 5837
- Gestir í dag: 373
- IP-tölur í dag: 335
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Augnablik - sæki gögn...




Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.