17.3.2010 | 16:41
Morgunblaðið: Undrabörnin frá Perú
Það er ekki á hverjum degi sem tveir heimsmeistarar í skák koma frá sama landinu, hvað þá úr sömu fjölskyldunni. Enda eru Cori-systkinin, sem tefla þessa dagana á Reykjavíkurskákmótinu, þjóðhetjur í sínu heimalandi. Daysi er 16 ára og Jorge 14 ára, en hann er jafnframt yngsti stórmeistari í heiminum.
Frá ritstjóra: Á meðan MP Reykjavíkurskákmótinu stóð sinnti Morgunblaðið mótinu afskaplega vel og birti um þær þrjár ítarlegar greinar auk hefðbundinna skákþátta Helga Ólafssonar í sunnudagsmogganum. Næstu 3 daga verða þessar greinar Morgunblaðsins um mótið birtar hér á Skák.is. Fyrsta greinin sem birtist í dag birtist í Sunnudagsmogganum 28. febrúar og er eftir Steinunni Þórhallsdóttur og fjallar um Perúsystkinin. Skák.is kann viðkomandi blaðamönnum og Morgunblaðinu bestu þakkir fyrir!
Það er ekki á hverjum degi sem tveir heimsmeistarar í skák koma frá sama landinu, hvað þá úr sömu fjölskyldunni. Enda eru Cori-systkinin, sem tefla þessa dagana á Reykjavíkurskákmótinu, þjóðhetjur í sínu heimalandi. Daysi er 16 ára og Jorge 14 ára, en hann er jafnframt yngsti stórmeistari í heiminum.
Tveir heimsmeistarar í skák rölta á móti mér eftir brúnni yfir í Ráðhúsið, á leið til annars mótsdags í MP Reykjavík Open. Þetta eru Daysi og Jorge Cori, 16 og 14 ára systkini frá Perú. Faðir þeirra, Jorge Cori eldri, er í fylgd með börnum sínum og þau heilsa öll blaðamanni með kossi og faðmlagi að suðuramerískum sið.
„Er ísinn traustur?" er það fyrsta sem Jorge Cori eldri spyr blaðamann og svo lýsir hann áhyggjum sínum af velferð fólksins sem hann sá hlaupa á honum í gærkvöldi. Eftir að hafa fullvissað hann um að ekki sé vitað til að nokkur hafi drukknað í Tjörninni náum við ljósmyndarinn að plata þau út á ísinn er umlykur Ráðhúsið og þau fíflast afslöppuð í snjónum, þótt ekki séu nema um 45 mínútur þar til skákir dagsins hefjast.Snjórinn frábær
Daysi Cori er eini alþjóðlegi kvenstórmeistari í skák í Perú og yngst allra kvenna í Suður-Ameríku til að bera þann titil. Jorge Cori er hins vegar yngsti alþjóðlegi stórmeistari í heimi og var yngstur Ameríkubúa að ná þeim áfanga aðeins 14 ára og tveggja mánaða. Í nóvember í fyrra náðu systkinin bæði þeim merka áfanga að vinna heimsmeistaratitla í skák í sínum aldursflokkum á heimsmeistaramóti unglinga í Tyrklandi.„Okkur brá svolítið í dag þegar við komum út í hríðina og allan þennan snjó og vindurinn ýtti og togaði í okkur. En mér finnst snjórinn frábær," segir Daysi og litli bróðir hennar samsinnir því.
Þau koma frá borginni Villa Salvador, sem er við Lima, höfuðborg Perú, þar sem allt annað loftslag ríkir. „Við erum að koma frá því að keppa á skákmótum á Frakklandi og Spáni og förum svo aftur til Spánar þegar þessu móti lýkur. Það er skólafrí í Perú núna og við notum það til að keppa og safna ELO-stigum."
Ég spyr þau hvernig líf skákmeistara sé. „Bara venjulegt, nema maður þarf að æfa sig aðeins meira," segir Jorge og flissar.
Skákin færir gleði
Börnin eru orðin þjóðhetjur í heimalandi sínu Perú og ég spyr þau hvort heimsmeistaratitlarnir hafi breytt lífi þeirra. „Jú, þetta hefur fært mikla gleði og hamingju í fjölskyldu okkar og svo þekkir fólk okkur á götum úti, vill taka ljósmyndir og fá eiginhandaráritanir. Við þurfum að leggja tímanlega af stað þegar við förum í bíó og svoleiðis."Jorge Cori eldri segir mér að þau séu af efnalitlu fólki komin. Hann er sjálfur verkamaður og konan hans skólaliði í grunnskóla. Þau hafi alla tíð þurft að reiða sig á styrki og aðstoð skáksambandsins í Perú, borgaryfirvalda í Villa Salvador og einkaaðila til að börnin geti keppt á mótum, og ótrúlegur árangur þeirra hefur síðan opnað þeim möguleika á betri menntun. Þeim var boðið að stunda nám í einkaskóla, og nýverið var Daysi boðinn styrkur til náms við háskóla í Bandaríkjunum. Styrktaraðilar þeirra í Perú hjálpuðu fjölskyldunni einnig að byggja sér hús. Skáksamband Perú er ekki sterkt miðað við önnur lönd og því ferðast faðirinn einn með börnin á stórmót þegar aðrar þjóðir mæta til leiks með lið þjálfara, sálfræðinga og aðstoðarmanna.
Læra fyrst, æfa svo
Krakkarnir eru á heimavelli þegar þau eru spurð að því hvenær þau hafi byrjað að tefla. „Ég var sex og hún var átta og pabbi kenndi okkur mannganginn. Þá var skákin ekki svo þekkt í Perú en hún er það núna. Þetta hefur ekki alltaf verið auðvelt en okkur finnst bara svo gaman að keppa á mótum og ferðast og hitta nýtt fólk," segir Jorge yngri.En eru þau ólíkir skákmenn? Daysi grípur orðið og segir að bróðir sinn sé rólegri og skipulagðari leikmaður en hún, en þau pæli lítið í því hvernig þau tefli. Ég spyr hvaða markmið þau hafi sett sér núna eftir heimsmeistaramótið og segir Daysi það vera að verða alþjóðlegur stórmeistari, sem aðeins tíu konur eru núna. Að auki vilji hún ná 2.600 ELO-stigum fyrir lok ársins.
„En það var mitt markmið," segir litli bróðir hlæjandi. „Þú stalst því." Bæði gangast þau við því að vera miklir keppnismenn og fá gríðarlega mikið út úr því að sigra sér eldri og reyndari mótherja.
Hvaðan koma þessir miklu skákhæfileikar? Jorge eldri hlær og svarar til: „Ég spyr sjálfan mig stundum hvernig standi á þessu!" Hann lýsir því að það hafi í raun verið alger tilviljun að skákin kom inn í líf þeirra. „Ég kunni varla mannganginn þegar krakkarnir fóru á sumarnámskeið, og við lærðum þetta saman til að byrja með. Kennarar barnanna tóku strax eftir hæfileikum þeirra og við leyfðum þeim að tefla út í eitt. Við tóku sigrar á skólamótum, héraðsmótum og landsmótum og þau færðust undrahratt upp styrkleikalistann. Þetta er það sem þeim finnst skemmtilegast að gera í lífinu og skákin sprettur svo eðlilega og áreynslulaust fram hjá þeim.
Það hefur verið þannig frá upphafi og er reyndar enn í dag," heldur Jorge eldri áfram, „að þau þurfa að vera búin að læra heima áður en ég hleypi þeim að taflborðinu. Ég legg áherslu á það að þau passi upp á skólann og fái góða menntun, en þeim er alveg sama um það eins og er, skákin er númer eitt, tvö og þrjú. Og það er meðal annars lykillinn að ótrúlegum árangri þeirra, að þau njóta leiksins til hins ýtrasta. Þegar þau eru ekki að keppa á mótum fáum við einkakennara sem kemur á hverjum einasta degi, meira að segja á jólunum. Þá reyndar kvörtuðu börnin og móðir þeirra hástöfum en ég lít svo á að þau fái frí frá skólabókunum þegar við erum á keppnisferðalögum. Skákin er þó að mínu mati góð íþrótt, því hún þjálfar hugsunina, þú munt aldrei hitta skákmann sem er fátækur að því leyti."
Og þetta virðist sannarlega vera fjölskylda í fríi fremur en keppnisíþróttamenn, þar sem ég horfi á eftir undrabörnunum tveimur trítla léttfætt í skáksalinn, meðan faðir þeirra leggur af stað í göngutúr í snjónum. Hann ætlar að skoða sig um í miðbænum, taka út skautasvellið og finna veitingastað til að bjóða krökkunum sínum á í kvöld. „Ég þarf ekkert að standa yfir þeim og greina skákirnar, þau sjá alveg um þetta sjálf."
Steinunn Þórhallsdóttir, Sunnudagsmoggi 28. febrúar
Meginflokkur: Spil og leikir | Aukaflokkar: Skákþættir Morgunblaðsins, Íþróttir, Íslenskar skákfréttir | Breytt 19.3.2010 kl. 12:10 | Facebook
Nýjustu færslur
- Hjörvar vann Flear - Bragi tapði
- Hjörleifur skákmeistari Akureyrar
- Hjörvar vann - Bragi með jafntefli
- Breska deildakeppnin: Bragi og Hjörvar í beinni kl. 14
- Björn Þorfinnsson skákmeistari Reykjavíkur í þriðja sinn
- Skákkeppni vinnustaða fer fram 17. febrúar
- Skákþing Goðans fer fram 17.-19. febrúar
- Gallerý Skák mótaröðin: Magnús vann þriðja mótið
- Enn hækkar Caruana - kominn í sjöunda sæti heimslistans
- Björgvin og Dagur efstir á Gestamóti Goðans
Spurt er
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Gestamót Goðans 12. janúar - 23. febrúar
- KORNAX mótið - Skákþing Reykjavíkur - aukakeppni 1.-12. febrúar
- Skákþing Vestmannaeyja 11. janúar - 22. febrúar
- Þorraatskákmót SSON 25. janúar - 15. febrúar
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skákakademía Reykjavíkur
- Skákbækur til sölu
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skáksagan Hrafn Jökulsson bloggar um skáksöguna
- Skákfréttasíða Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Þjálfaðu eins og stórmeistari Kennslusíða Henriks
- Skákvörur Heimasíða á vegum Smára Rafns
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Taflfélagið Hellir Sterkt og skemmtilegt!
- Taflfélag Reykjavíkur
- Taflfélag Garðabæjar
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélagið Goðinn
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild KR
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chessdom
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Chess Vibes
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
- Tim Krabbé
- First Saturday Mánaðarleg skákmót í Búdapest
Teflt á netinu
Almanök
Spjallþræðir
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- ChessNinja
RSS-straumar
Eldri færslur
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.2.): 1509
- Sl. sólarhring: 1908
- Sl. viku: 19561
- Frá upphafi: 3707623
Annað
- Innlit í dag: 619
- Innlit sl. viku: 5834
- Gestir í dag: 372
- IP-tölur í dag: 334
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Augnablik - sæki gögn...




Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.