Leita í fréttum mbl.is
Embla

EM: Hannes og Henrik enduðu með sigri - Nepomniachtchi og Cramling Evrópumeistarar

Stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson (2574) og Henrik Danielsen (2494) unnu báðir í lokaumferð EM einstaklinga sem fram fór í Rijeka í Króatíu í dag.    Hannes sigraði þýska alþjóðlega meistarann Mathias Womacka (2452) en Henrik vann makedónska alþjóðlega meistarann Dusan Lekic (2396).   Ian Nepomniachtchi (2656) og Pia Cramling (2523) urðu Evrópumeistarar.   

Hannes hlaut 6,5 vinning og Henrik 6 vinninga.  Hannes hækkar um 3 stig fyrir frammistöðu sína sem samsvaraði 2589 skákstigum en Henrik lækkar um 2 stig fyrir frammistöðu sína sem samsvaraði 2443 skákstigum.

Hinn 19 ára, rússneski stórmeistari Ian Nepomniachtchi (2656) varð Evrópumeistari en hann var aðeins 35. stigahæsti keppandinn.  Í 2.-3. sæti urðu stórmeistararnir Baadur Jobava (2695), sem leiddi lengst af, og Artyom Timofeev (2655), Rússlandi. Tíu skákmenn komust beint áfram á Heimsbikarmótið (World Cup) en 30 skákmenn þurfa að tefla atskák til úrslit um 12 laus sæti og þar á meðal eru Íslandsvinirnir Movsesian og Sokolov. 

Enginn norðurlandabúi komst áfram en Emanuel Berg stóð sig best þeirra en hann fékk 7 vinninga.  Það er athyglisvert að ekkert norðurlandanna sendi fleiri fulltrúa á opin flokk en litla Ísland.  Svíar áttu einnig tvo fulltrúa en Danir, Finnar og Norðmenn áttu hvern sinn fulltrúa og sumir þeirra fóru á eigin vegum.  

Pia Cramling Evrópumeistari kvenna var eini fulltrúi norðurlandanna í kvennaflokki.   Í öðru sæti varð litháíska skákkonan Viktorija Cmilyte (2485) en Cramling vann hana í lokaumferðinni.  



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands.  Netfang ritstjóra er frettir@skaksamband.is.

Spurt er

Hver sigrar á Gestamóti Goðans?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband