Leita í fréttum mbl.is
Embla

Íslandsmót framhaldsskólasveita fer fram á föstu- og laugardag

Íslandsmót framhaldsskólasveita í skák 2010 hefst föstudag 26. mars nk. kl. 19 og er fram haldið laugardag 27. mars kl. 17.  Teflt er í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur í Skákhöllinni Faxafeni 12.

Keppnisfyrirkomulag er með svipuðu sniði og áður, hver sveit skal skipuð fjórum nemendum á framhaldsskólastigi (f. 1990 og síðar), auk 1- 4 til vara. Tefldar verða sjö umferðir eftir Monrad- kerfi, ef næg þátttaka fæst. Að öðrum kosti tefla sveitir einfalda umferð allar við allar. Umhugsunartími er ½ klukkustund á skák fyrir hvorn keppanda.

Nánar um mótsreglur sjá vef Skáksambands Íslands (Lög og Reglugerðir, Reglugerð um Íslandsmót framhaldsskólasveita í skák). http://www.skaksamband.is

Fjöldi sveita frá hverjum skóla er ekki takmarkaður. Sendi skóli fleiri en eina sveit skal sterkasta sveitin nefnd A- sveit, næsta B- sveit o.s.frv. Einnig skal raðað innan hverrar sveitar eftir styrkleika þannig að sterkasti skákmaðurinn er á fyrsta borði o.s.frv. - Ekkert þátttökugjald.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á netfang Taflfélags Reykjavíkur taflfelag@taflfelag.is  í síðasta lagi fimmtudag 25. mars.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands.  Netfang ritstjóra er frettir@skaksamband.is.

Spurt er

Hver sigrar á Gestamóti Goðans?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband