Leita í fréttum mbl.is
Embla

Guðmundur vann í þriðju umferð í Pardubice

Guðmundur Kjartansson í Búdapest 2010 Alþjóðlegi meistarinn, Guðmundur Kjartansson (2384), vann þýska skákmanninn Marco Otte (2258) í þriðju umferð Czech Open sem fram fór í dag.  Guðmundur hefur 2 vinninga.  

Í 4. umferð, sem fram fer á morgun, teflir Guðmundur við Þjóðverjann Jens Schulz (2156).

Alls taka 308 skákmenn þátt í efsta flokki Czech Open sem fram fer 23.-31. júlí í Pardubice í Tékklandi, þar á meðal 42 stórmeistarar, 10 stórmeistarar kvenna og 65 alþjóðlegir meistarar.  Guðmundur er númer 100 í stigaröð keppenda.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands.  Netfang ritstjóra er frettir@skaksamband.is.

Spurt er

Hver sigrar á Gestamóti Goðans?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband