Leita í fréttum mbl.is
Embla

Henrik með stutt jafntefli við Grabarczyk - efstur ásamt Jones

Einbeittur Henrik Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2512) gerði stutt jafntefli við pólska stórmeistarann Miroslaw Grabarczyk (2466) í næstsíðustu umferð minningarmótsins um Heini Olsen sem tefld var í dag í Klaksvík í Færeyjum.   Henrik er efstur, með 6 vinninga, ásamt enska stórmeistaranum Gawain Jones (2568) fyrir lokaumferð mótsins sem fram fer í fyrramálið.  Í lokaumferðinni teflir Henrik við danska alþjóðlega meistarann Silas Lund (2408). 

Þess má geta að mótshaldarar skiptu á 8. og 9. umferðum og skákir 9. umferðar voru tefldar í dag og skákir 8. umferðar verða tefldar á morgun.  Jones hefur þegar lokið skák sinni í 8. umferð og sigraði í þeirri skák.  Henrik þarf því sigur í lokaumferðinni til að ná skiptu efsta sæti mótsins ásamt Jones.  Grabarczyk er þriðji með 5 vinninga.

Bent er á umfjöllun um skák Henrik og Jones á Skákhorninu.  

Á Klaksvík Open, sem er opinn flokkur, sem tefldur er samhliða er Róbert Lagerman (2282) í 3.-4. sæti með 6 vinninga. Saga Kjartansdóttir og Ásrún Bjarnadóttir eru efstir ÓSK-anna með 4 vinninga, Þorbjörg Sigfúsdóttir, Guðný Erla Guðnadóttir og Stefanía R. Ragnarsdóttir hafa 3 vinninga en aðrar minna.

Á minningarmótinu tefla 10 skákmenn og eru meðalstig 2389 skákstig.  Henrik er næststigahæstur  keppenda en stigahæstur er enski stórmeistarinn Gawain Jones (2568).  Róbert er næststigahæstur í Klaksvík Open en auk hans tefla þar átta stúlkur frá Ó.S.K.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands.  Netfang ritstjóra er frettir@skaksamband.is.

Spurt er

Hver sigrar á Gestamóti Goðans?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband