Leita í fréttum mbl.is
Embla

Guðmundur tapaði í fimmtu umferð í Pardubice

Alþjóðlegi meistarinn, Guðmundur Kjartansson (2384), tapaði fyrir indverska alþjóðlega meistarann Santosh Gujrathi Vidit (2492) í fimmtu umferð Czech Open sem fram fór í Pardubice í Tékklandi í dag.  Guðmundur hefur 3 vinninga og er í 67.-124. sæti.  

Í 6. umferð, sem fram fer á morgun, teflir Guðmundur við króatísku skákkonuna Borka Franciskovic (2253).

Efstir með 4,5 vinning eru stórmeistararnir Anton Korobov (2657), Úkraínu, og Alexandr Rakhmanov (2590) og Artur Gabrielian (2559), Rússlandi, og alþjóðlegu meistararnir Hans Tikkanen (2469) og Axel Smith (2416), Svíþjóð, og Mikhail Zaslavsky (2413), Ísrael.  

Tvær skákir Guðmundar eru aðgengilegar á vef mótsins og fylgja hér með.

Alls taka 308 skákmenn þátt í efsta flokki Czech Open sem fram fer 23.-31. júlí í Pardubice í Tékklandi, þar á meðal 42 stórmeistarar, 10 stórmeistarar kvenna og 65 alþjóðlegir meistarar.  Guðmundur er númer 100 í stigaröð keppenda.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands.  Netfang ritstjóra er frettir@skaksamband.is.

Spurt er

Hver sigrar á Gestamóti Goðans?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband