Leita í fréttum mbl.is
Embla

Guðmundur með jafntefli í dag í Pardubice

Guðmundur Kjartansson Alþjóðlegi meistarinn, Guðmundur Kjartansson (2384), gerði jafntefli við króatísku skákkonuna Borka Franciskovic (2253) í sjöttu umferð Czech Open sem fram fór í Pardubice í Tékklandi í dag.  Guðmundur hefur 3,5 vinning og er í 72.-127. sæti.  

Í 6. umferð, sem fram fer á morgun, teflir Guðmundur við, rússneska skákmeistarann (CM), Mikhail Antipov (2238). 

Efstir með 5,5 vinning eru úkraínski stórmeistarinn Anton Korobov (2657) og ísraelski alþjóðlegi meistarinn Mikhail Zaslavsky (2413).

Alls taka 308 skákmenn þátt í efsta flokki Czech Open sem fram fer 23.-31. júlí í Pardubice í Tékklandi, þar á meðal 42 stórmeistarar, 10 stórmeistarar kvenna og 65 alþjóðlegir meistarar.  Guðmundur er númer 100 í stigaröð keppenda.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands.  Netfang ritstjóra er frettir@skaksamband.is.

Spurt er

Hver sigrar á Gestamóti Goðans?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband