Leita í fréttum mbl.is
Embla

Skáksveit MR norðurlandameistari framhaldsskólasveita!

Skáksveit Menntaskólans í Reykjavík er norðurlandameistari framhaldsskólasveita en keppnin fór fram í Osló um helgina.  Sveitin sigraði norsku sveitina 3-1, sem þjálfuð er af Simen Agdestein, í lokaumferðinni þrátt fyrir að vera stigalægri á öllum borðum og náði þar með efsta sætinu af gestgjöfunum.  Sverrir Þorgeirsson og Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir unnu og Bjarni Jens Kristinsson og Paul Frigge gerðu jafntefli.

Úrslit 3. umferðar:

 

Iceland3-1Norway
Þorgeirsson (2142)1-0Gandrud (2170)
Kristinsson (2018)½-½Thingstad (2105)
Þorsteinsdóttir (1941)1-0Nilsen (2082)
Frigge (1828)½-½Mikalsen (1932)

 

Lokastaðan:

  1. MR 9 v.
  2. Noregur 8 v.
  3. Svíþjóð 5,5 v.
  4. Finnland 1,5v.

Skáksveit MR:

  1. Sverrir Þorgeirsson 2,5 v.
  2. Bjarni Jens Kristinsson 1,5 v.
  3. Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir 2,5 v.
  4. Paul Frigge 2,5 v.

 

Heimasíða mótsins

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands.  Netfang ritstjóra er frettir@skaksamband.is.

Spurt er

Hver sigrar á Gestamóti Goðans?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband